15.01.13 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Strachan tekinn við Skotum (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn afar litríki og gríðar hressi Gordon Strachan hefur verið kynntur sem landsliðsþjálfari Skotlands.
Þessi fyrrum knattspyrnustjóri Middlesbrough og Celtic í Glasgow tekur við af Craig Levein sem var rekinn seint á síðasta ári.

„Ég er mjög stoltur og það er fjölskylda mín einnig. Þetta er rétta tímasetningin fyrir mig til að taka að mér svona starf. Markmið mitt er að fá þjóðina til að gleðjast,\" segir hinn 55 ára Strachan.
Strachan lék sjálfur 50 landsleiki á sínum tíma fyrir Skota.
Hann lék fyrir Dundee, Aberdeen, Manchester United, Leeds United og Coventry City og hóf svo knattspyrnustjóraferilinn þegar hann tók við þeim síðastnefndu 1996.