Fotbolti.net
15.01.14 - 19:46
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Alessandro Matri lánaður til Fiorentina (Staðfest)

Alessandro Matri

Alessandro Matri

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórliðið Fiorentina hefur fengið ítalska framherjann Alessandro Matri á láni út tímabilið frá AC Milan en félagið staðfesti þetta fyrr í dag.
Matri, sem kom til Milan frá Juventus síðasta sumar hefur lítið gengið að finna sig hjá Mílanó-liðinu og ákvað því félagið að lána hann.

Fiorentina hefur verið í vandræðum með framherjastöðuna að undanförnu en bæði Mario Gomez og Giuseppe Rossi eru meiddir.

Matri stóðst læknisskoðun í dag og verður kynntur fyrir fjölmiðlum á morgun en félagið birti mynd af honum í treyju Fiorentina á vefsíðu sinni í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.