15.01.14 - 15:11
Magnús Már Einarsson
Kári Ársælsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Brjánn Guðjónsson, varaformaður knattspyrnudeildar BÍ/Bolungarvíkur og Kári eftir undirskriftina í dag.

Mynd: BÍ/Bolungarvík

BÍ/Bolungarvík hefur gert eins árs samning við varnarmanninn Kára Ársælsson.
Kári hefur verið á mála hjá ÍA undanfarin tvö ár en í haust varð ljóst að hann myndi róa á önnur mið.
Þessi 28 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Breiðabliki en hann á einnig að baki eitt tímabil með Stjörnunni.
Kári var fyrirliði Breiðabliks þegar liðið varð Íslandsmeistari 2010 og þegar liðið varð bikarmeistari árið á undan.
BÍ/Bolungarvík mun einnig á næstunni fá tvo markverði á reynslu en þeir munu koma við sögu í Fótbolta.net mótinu með liðinu. Annar markvörðurinn er frá Frakklandi en hinn er frá Englandi.