Fotbolti.net
15.01.14 - 16:58
Elvar Geir Magnússon

Nemanja Matic kominn aftur í Chelsea (Staðfest)

Nemanja Matic er kominn aftur í bláa búninginn.

Nemanja Matic er kominn aftur í bláa búninginn.

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska félagið Benfica staðfestir á heimasíðu sinni að Nemanja Matic sé orðinn leikmaður Chelsea. Kaupverðið er 25 milljónir punda.

Matic yfirgaf Chelsea 2011 en aðeins sjö leikmenn eru í aðalliði félagsins í dag sem voru þegar Matic hvarf á braut. Þá er líklegt að hluti þeirra skipti um félag í sumar.
Koma hans gefur Mourinho enn meiri möguleika á miðsvæðinu en það er orðið ansi sterkt hjá Chelsea.

Matic verður ekki löglegur með liðinu í Meistaradeildinni þar sem hann hefur tekið þátt með Benfica í keppninni.

Matic er serbneskur landsliðsmaður, hann hefur skrifað undir samning sem gildir í fimm og hálft ár og mun klæðast treyju númer 21.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.