Fotbolti.net
15.01.14 - 18:10
Magnús Már Einarsson

Nikica Jelavic til Hull (Staðfest)

Nikica Jelavic til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt framherjann Nikica Jelavic í sínar raðir frá Everton. Jelavic skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning en talið er að kaupverðið hljóði upp á 6,5 milljónir punda.
,,Þetta er gott félag. Það tók mig ekki langan tíma að átta mig á að þetta væri rétti kosturinn fyrir mig,\" sagði Jelavic.

Þessi króatíski landsliðsmaður kom til Everton frá Rangers á 5,5 milljónir punda fyrir tveimur árum síðan en hann skoraði níu mörk í fyrstu þrettán leikjum sínum með félaginu og var valinn leikmaður mánaðarins í apríl 2012.

Síðan þá hefur hallað undan fæti en hann skoraði ekkert frá mars í fyrra þar til í byrjun mánaðarins þegar hann skoraði gegn QPR.

Jelavic verður líklega ekki eini framherjinn sem Hull fær í mánuðinum því félagið er einnig nálægt því að krækja í Shane Long frá WBA.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.