15.01.14 - 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Sigrún Ella í Stjörnuna (Staðfest)

Sigrún Ella er orðin leikmaður Stjörnunnar.

Mynd: Stjarnan

Íslandsmeistarar Stjörnunnar hafa fengið frekari liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi-deild kvenna, en í gær skrifaði Sigrún Ella Einarsdóttir undir þriggja ára samning við félagið.
Sigrún Ella kemur til Stjörnunnar frá FH, þar sem hún hefur leikið allan sinn feril. Hún er fædd árið 1992 en þrátt fyrir ungan aldur hefur hún spilað 99 leiki fyrir FH í deild og bikar og skorað í þeim 61 mark.
Sigrún Ella er kantmaður sem er búin að vera í æfingahópi A-landsliðsins í vetur. Hún á að baki níu leiki fyrir U19 og U17 ára landslið Íslands.
Sigrún Ella er annar ungi leikmaðurinn sem Stjarnan fær til liðs við sig á skömmum tíma, en Lára Kristín Pedersen kom til félagsins frá Aftureldingu í síðasta mánuði.
,,Við erum mjög ánægð með að hafa fengið Sigrúnu Ellu til liðs við okkur og erum sannfærð um að hún muni styrkja liðið,\" sagði Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs kvenna, við Fótbolta.net.
,,Stefna okkar hefur verið að fá til liðsins unga og góða knattspyrnumenn til að byggja upp liðið ásamt þeim ungu og reyndari leikmönnum sem við höfum fyrir.\"
,,Sigrún Ella og Lára Kristín passa fullkomlega inn í þessa stefnu okkar og er það mikið gleðiefni að þær séu orðnar leikmenn Stjörnunnar.\"