Fotbolti.net
15.01.16 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson

Anthony Caceres til Man City (Staðfest)

Anthony Caceres til Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City er búið að festa kaup á Anthony Caceres frá Central Coast Mariners sem leikur í efstu deild í Ástralíu.

Caceres er 23 ára gamall miðjumaður sem er þekktur fyrir að vera teknískur, sterkur og með hnitmiðaðar sendingar.
Caceres mun líklega ekki spila mikið fyrir Man City þar sem hann verður strax lánaður út, líklegast til Melbourne City, sem er systurfélag Manchester City í Ástralíu.

„Við vissum að Caceres yrði eftirsóttur þegar við fengum hann fyrst til félagsins,\" sagði Tony Walmsley, þjálfari Mariners.

„Við fögnum því þegar leikmenn okkar eru seldir til stærri félaga, það er merki um mikla persónulega þróun.\"

Kaupverðið er óuppgefið, en Caceres er talinn meðal bestu miðjumanna áströlsku deildarinnar en hefur þó ekki enn spilað landsleik fyrir Ástralíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.