Fotbolti.net
15.01.16 - 19:36
Arnar Geir Halldórsson

Marcelo Diaz til Celta Vigo (Staðfest)

Diaz í leik með Hamburg í vetur

Diaz í leik með Hamburg í vetur

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarliðið Celta Vigo hefur gengið frá kaupum á Marcelo Diaz.
Marcelo Diaz kemur til liðsins frá þýska úrvalsdeildarliðinu Hamburg eftir aðeins eitt ár í herbúðum þýska liðsins.

Diaz kom til liðs við Hamburg frá Basel fyrir tæpu ári síðan og skoraði eitt mark í sautján leikjum hjá Hamburg en það mark var ansi dýrmætt þar sem það var markið sem bjargaði liðinu frá falli úr efstu deild.

Hjá Celta Vigo er Diaz, sem kemur frá Síle ætlað að fylla skarð Augusto Fernandez sem gekk til liðs við Atletico Madrid fyrr í þessum mánuði.

Diaz, sem er 29 ára gerir þriggja og hálfs árs samning við spænska félagið en hann á 41 landsleik að baki fyrir Síle.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.