Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 15. janúar 2020 15:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grikkland: Sverrir í byrjunarliði PAOK sem fór sannfærandi áfram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
PAOK 4 - 1 OFC Crete

PAOK tók á móti OFI Crete í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum grísku bikarkeppninnar. PAOK er ríkjandi bikarmeistari og leiddi 3-0 eftir fyrri leik liðanna.

PAOK komst í 2-0 eftir 23. mínútna leik en gestirnir minnkuðu muninn skömmu seinna. Ef það var einhver spurning um að PAOK færi áfram þá var henni svarað með tveimur mörkum heimamanna í seinni hálfleik sem innsiglaði 7-1 sigur PAOK samtals í viðureigninni.

Sverrir Ingi lék allan tímann í hjarta varnarinnar.og hefur hann byrjað síðustu fjórtán leiki PAOK í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner