Arnór Borg Guðjohnsen hefur skrifað undir nýjan samning við Fylki í efstu deild karla en þetta staðfesti félagið í kvöld.
Arnór er sonur goðsagnarinnar Arnórs Guðjohnsen sem lék á sínum tíma yfir 70 landsleiki fyrir Ísland og gerði í þeim 14 mörk.
Sóknarmaðurinn er fæddur árið 2000 og kom til Fylkis fyrir tímabilið í fyrra eftir dvöl í unglingaliði Swansea í Wales.
Arnór lék alls 19 leiki fyrir Fylki í öllum keppnum í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.
Í tilkynningu Fylkis kemur ekki fram hvað samningurinn er langur en Arnór mun hið minnsta spila með liðinu út næsta tímabil.
Athugasemdir