Pétur Theódór Árnason hefur framlegt samning sinn við Gróttu til tveggja ára. Pétur skoraði þrjú mörk í átján leikjum þegar Grótta féll úr Pepsi Max-deildinni á síðasta tímabili.
Pétur Theódór er sóknarmaður sem á að baki 119 leiki fyrir Gróttu þar sem hann hefur skorað 41 mark.
Pétur spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið árið 2011 en hann hefur verið lykilmaður í liðinu síðustu ár.
Í byrjun árs 2020 var Pétur valinn bæði íþróttamaður Gróttu og íþróttamaður Seltjarnaness ásamt því að hafa verið markahæsti leikmaður Gróttu sumarið 2019 þar sem hann skoraði 15 mörk í 22 leikjum í Inkasso-deild karla.

„Við erum himinlifandi með samkomulagið við Pétur, enda mikilvæg fyrirmynd í okkar starfi og frábær íþróttamaður. Við erum líka sannfærð um að hann haldi áfram að gleðja Seltirninga í framlínu Gróttuliðsins," sagði Birgir Tjörvi Pétursson formaður knattspyrnudeildar Gróttu við heimasíðu Gróttu.
Athugasemdir