Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 15. janúar 2022 15:55
Brynjar Ingi Erluson
Everton að tapa fyrir Norwich - Hljóp inn á völlinn og ætlaði að ræða við Benítez
Rafael Benítez er ekki vinsæll í bláa hluta Liverpool-borgar
Rafael Benítez er ekki vinsæll í bláa hluta Liverpool-borgar
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Everton virðist hafa fengið sig fullsadda af Rafael Benítez, stjóra félagsins, en liðið er að tapa fyrir nýliðum Norwich í hálfleik, 2-0.

Everton vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli í byrjun leiktíðar en síðan þá hefur það aðeins unnið tvo leiki. Everton situr í 15. sæti deildarinnar með aðeins 19 stig.

Stuðningsmenn Everton hafa kallað eftir því að félagið reki Benítez úr starfi og gekk meira að segja einn stuðningsmaðurinn svo langt í dag og hljóp inn á völlinn og í áttina að Benítez.

Everton er tveimur mörkum undir í hálfleik en þegar lítið var eftir af fyrri hálfleiknum fékk stuðningsmaðurinn nóg og vildi eiga nokkur orð við Benítez.

Gæslan á Carrow Road kom í veg fyrir að hann náði markmiði sínu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner