15.02.13 - 18:30
Magnús Már Einarsson
David Bentley til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur fengið kantmanninn David Bentley á láni frá Tottenham út þetta tímabil.
Bentley þekkir vel til hjá Blackburn en hann lék með liðinu í nokkur ár áður en Tottenham keypti hann á fimmtán milljónir punda árið 2008.

Bentley hefur ekki verið inni í myndinni hjá Tottenham undanfarin ár og hann hefur meðal annars farið til Birmingham og West Ham á láni. Fyrir áramót var hann síðan á láni hjá FC Rostov í Rússlandi.
Bentley gæti leikið með Blackburn á morgun þegar liðið mætir Everton í enska bikarnum.
Blackburn stefnir á að ná umspilssæti í Championship deildinni en fyrr í dag fékk félagið Karim Rekik á láni frá Manchester City.

Heimild: Sky