Fotbolti.net
15.02.13 - 15:25
Magnús Már Einarsson

Guðfinnur Þórir í Grindavík (Staðfest)

Guðfinnur Þórir í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Guðfinnur Þórir Ómarsson, kantmaður úr Þrótti, hefur gengið til liðs við Grindavík en þetta staðfesti Milan Stefán Jankovic þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Guðfinnur Þórir er fluttur til Grindavíkur og hann hefur æft með liðinu að undanförnu.

Þessi þrítugi leikmaður er uppalinn hjá Þrótti en hann lék einnig með ÍR frá 2006 til 2009.

Síðastliðið sumar skoraði Guðfinnur fimm mörk í 24 deildar og bikarleikjum með Þrótturum.

Samtals hefur Guðfinnur skorað 30 mörk í 197 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.

Grindvíkingar hafa verið rólegir á leikmannamarkaðinum í vetur en að sögn Milan Stefáns gætu ungir leikmenn úr Pepsi-deildinni komið til félagsins á láni á næstunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.