Fotbolti.net
15.02.13 - 18:14
Elvar Geir Magnússon

Halldór Orri búinn að skrifa undir hjá Stjörnunni (Staðfest)

Halldór Orri búinn að skrifa undir hjá Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Silfurskeiðin, stuðningsmannasveit Stjörnunnar, hefur greint frá því að Halldór Orri Björnsson hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.

Valur hafði áhuga á að fá Halldór í sínar raðir en nú er ljóst að hann verður áfram hjá Stjörnuliðinu.
Halldór Orri er fæddur 1987 og hefur alla sína tíð leikið fyrir Stjörnuna, hans fyrsti meistaraflokksleikur kom 2004.

Á silfurskeid.in stendur:

„Hvíthærða eftirlæti Silfurskeiðarinnar, Halldór Orri Björnsson hefur bundið enda á vangaveltur um framtíð sína með því að skrifa undir tveggja ára framlengingu við Stjörnuna. Þetta er mikið fagnaðarefni enda Halldór verið liðinu gríðarlega mikilvægur frá því að hann kom fram á sjónarsviðið og er í miklu uppáhaldi hjá Silfurskeiðinni fyrir vikið. Orðrómur hafði verið uppi um að Dóri væri jafnvel á förum frá félaginu en drengurinn elskar Stjörnuna og sýndi það með því að skrifa undir í dag eftir stuttar samningaviðræður.\"

Heimild: Silfurskeiðin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.