Fotbolti.net
15.02.13 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Helgi Sig mun spila með Fram (Staðfest)

Helgi í leik með Fram sumarið 2006.

Helgi í leik með Fram sumarið 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Helgi Sigurðsson mun vera spilandi aðstoðarþjálfari hjá Fram í Pepsi-deildinni í sumar.

Þessi gamalreyndi framherji tók við sem aðstoðarþjálfari hjá Fram síðastliðið haust eftir að hafa áður verið spilandi aðstoðarþjálfari hjá Víkingi R.
Helgi spilaði ekkert með Fram í Reykjavíkurmótinu en hann hefur nú fengið leikheimild með liðinu.

Helgi getur því byrjað að spila með Fram strax á sunnudag þegar liðið mætir Völsungi í Lengjubikarnum.

Þetta er í fjórða sinn á ferlinum sem Helgi leikur með Fram en hann skoraði 23 mörk fyrir Fram í 36 deildarleikjum 1993 og 1994 og 13 mörk í 18 leikjum sumarið 2006.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.