Fotbolti.net
15.02.13 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Karim Rekik til Blackburn (Staðfest)

Karim Rekik til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið varnarmanninn unga Karim Rekik á láni frá Manchester City út tímabilið.

Þessi 18 ára gamli leikmaður lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í desember þegar hann leysti stöðu vinstri bakvarðar í 1-0 sigri Manchester City á Reading.
,,Hann á eftir að verða leikmaður í ensku úrvalsdeildinni næstu 15 eða 20 árin. Við erum heppnir að hafa krækt í hann,\" sagði Michael Appleton stjóri Blackburn.

Appleton þekkir Rekik því hann fékk leikmanninn til Portsmouth á síðasta tímabili.

Appleton er að reyna að styrkja leikmannahóp Blackburn fyrir lokasprettinn í Championship deildinni en hann er einnig að reyna að fá David Bentley á láni frá Tottenham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.