15.02.16 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jelavic seldur til Kína (Staðfest)

Mynd: West Ham

Mynd: West Ham
Nikica Jelavic er genginn til liðs við kínverska B-deildarliðið Beijing Renhe.
Renhe festi kaup á króatíska framherjanum fyrir 4 milljónir punda en hann hefur aðeins spilað einn byrjunarliðsleik í úrvalsdeildinni frá komu sinni til West Ham síðasta sumar.

Jelavic hefur þó komið við sögu í tólf úrvalsdeildarleikjum fyrir Hamrana og gert eitt mark, en þar áður hafði hann gert 29 mörk í 105 deildarleikjum fyrir Everton og Hull City í enska boltanum.
Beijing Renhe féll úr kínversku A-deildinni á síðasta tímabili og er Jelavic mikill liðsstyrkur fyrir félagið sem var aðeins með tvo erlenda leikmenn innanborðs fyrir komu Króatans.
Annar þeirra er miðjumaðurinn Sejad Salihovic sem gerði 62 mörk í 230 deildarleikjum fyrir Hoffenheim og hinn er Zvjezdan Misimovic sem hefur leikið fyrir Bayern München, Wolfsburg, Galatasaray og Dynamo Moskvu meðal annars.