Fotbolti.net
15.02.17 - 15:49
Magnús Már Einarsson

Besta knattspyrnukona heims til Man City (Staðfest)

Carli Lloyd.

Carli Lloyd.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Kvennalið Manchester City hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk en Carli Lloyd hefur samið við félagið.

Lloyd hefur verið valin best í heimi hjá FIFA undanfarin tvö ár.

Hin 34 ára gamla Lloyd gerði stuttan samning við Manchester City en hún leikur með liðinu í sérstöku vormóti sem fer fram í apríl og fram í júní.

Lloyd, sem er miðjumaður, verður líka með City gegn danska liðinu Fortuna Hjörring í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næsta mánuði sem og í enska bikarnum.
Lloyd hefur skorað 96 mörk í 232 landsleikjum á ferlinum en hún skoraði meðal annars þrennu á 13 mínútna kafla í úrslitaleik HM 2015.

World Cup winner ✔️
2 Times FIFA Women’s Player of the Year ✔️
Double Olympic Gold Champion ✔️

Welcome @CarliLloyd! 🙌 #WelcomeCarli #mcwfc pic.twitter.com/B9vH5Oj2E6

— Man City Women (@ManCityWomen) February 15, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.