Fotbolti.net
15.02.17 - 18:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Haukar semja við bandarískan markvörð (Staðfest)

Tori Ornela er gengin til liðs við Hauka

Tori Ornela er gengin til liðs við Hauka

Canon

Mynd: Haukar

Kvennaboltinn
Kvennalið Hauka hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Pepsí-deild kvenna í sumar en bandaríski markvörðurinn Tori Ornela hefur skrifað undir samning um að leika með liðinu í sumar <b><a href=\"http://www.haukar.is/tori-ornela-semur-vid-hauka/\" target=\"_blank\">en þetta kemur fram á heimasíðu Hauka.</a></b>
Tori lék síðast með FC Indiana í WPSL deildinni í Bandaríkjunum en það er næst efsta deild Bandaríkjanna. Þar var hún valin leikmaður ársins. Einnig hefur Ornela spilað með Fresno Freeze í sömu deild.

Tori spilaði í efstu deild háskólaboltans í Bandaríkjunum frá árunum 2011-2016 með liði California State University.

„Ég er mjög spennt að læra af þeim bestu og bæta minn leik sem leikmaður og liðsfélagi. Ég hef dreymt um spila á hæsta stigi fótboltans frá því ég var lítil stelpa og mér líst virkilega vel á að spila með Haukum í sumar,” sagði Tori á heimasíðu Hauka.

„Við höfum góða trú á því að hún eigi eftir að reynast okkur vel í sumar,\" sagði Halldór Jón Garðarsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Haukum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.