Fotbolti.net
15.02.17 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Þjálfari Ólafs Inga tekinn við Galatasaray (Staðfest)

Þjálfari Ólafs Inga tekinn við Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Igor Tudor hefur verið ráðinn þjálfari hjá tyrkneska stórliðinu Galatasaray.

Tudor hættir því sem þjálfari Karabukspor þar sem Ólafur Ingi Skúlason er á meðal leikmanna.
Jan Olde Riekernik var í gærkvöldi rekinn frá Galatasaray en Tudor tekur við af honum.

Jan Olde gerði Galatasaray að bikarmeisturum á seinasta tímabili en það hefur lítið gengið á þessu tímabili og liðið er nú fimm stigum á eftir Besiktas sem vermir toppsætið.

Hinn 38 ára gamli Tudor er frá Króatíu en hann lék með Juventus frá 1998 til 2007.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.