Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. febrúar 2020 12:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ajax að ganga frá kaupum á Antony
Mynd: Getty Images
Hollandsmeistarar Ajax eru að ganga frá kaupum á brasilíska ungstirninu Antony, sem verður tvítugur síðar í febrúar.

Antony spilar sem framherji fyrir Sao Paulo í brasilíska boltanum og hefur hann gert 5 mörk í 9 leikjum fyrir U23 landsliðið.

Samkvæmt brasilískum fjölmiðlum greiðir Ajax 16 milljónir evra fyrir Antony en verðið getur náð 30 milljónum með árangurstengdum aukagreiðslum.

Antony mun ganga í raðir Ajax þegar félagaskiptaglugginn opnar næsta sumar. Þetta er annað tilboð Ajax í framherjann en Sao Paulo hafnaði fyrra boðinu.

Globo Esporte greinir frá því að Sao Paulo hafnaði 15 milljón evru tilboði frá Borussia Dortmund í janúar.
Athugasemdir
banner
banner