Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 15. febrúar 2020 16:33
Arnar Helgi Magnússon
Danijel Majkic leikur með Selfossi í sumar (Staðfest)
Danijel ásamt Dean Martin og Jóni Steindóri við undirskriftina í morgun.
Danijel ásamt Dean Martin og Jóni Steindóri við undirskriftina í morgun.
Mynd: Selfoss
Knattspyrnudeild Selfoss samdi í morgun við Danijel Majkic um að leika með liðinu í 2. deild í sumar. Danijel er 32 ára og er frá Bosníu. Hann æfði með liðinu í vikunni og spilaði í 2-1 sigri á Ægi í æfingaleik í morgun.

„Fyrstu dagarnir voru sérstakir hér og tók það mig smá tíma að venjast breyttum aðstæðum en þetta verður bara betra með hverjum deginum," segir Danijel.

Hann getur leyst nokkrar stöður á vellinum í vörn og á miðju. Danijel hefur komið víða við á sínum ferli og spilað í löndum eins og Svíþjóð, Rússlandi, Líbíu og í heimalandinu, Bosníu.

„Ég hef í raun bara heyrt góða hluti um landið og fólkið. Leikmennirnir, þjálfararnir og fólkið í kringum félagið hefur verið frábært hingað til. Svo hefur heimbsyggðin fengið að fylgjast með uppgangi íslenska boltans undanfarin ár svo að ég ákvað að stökkva til og prófa að spila á Íslandi," sagði Danijel að lokum.

Selfoss hefur leik í Lengjubikarnum næstu helgi þegar liðið mætir Álftanesi á Bessastaðavelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner