banner
   lau 15. febrúar 2020 13:28
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Gummi Magg afgreiddi HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 1 - 2 Grindavík
0-1 Guðmundur Magnússon ('34)
0-2 Guðmundur Magnússon ('73)
1-2 Birkir Valur Jónsson ('76)

Guðmundur Magnússon afgreiddi HK með tvennu er Grindavík kíkti í heimsókn í Kórinn í Lengjubikarnum í dag.

Guðmundur skoraði í fyrri hálfleik og tvöfaldaði forystuna á 73. mínútu. Skömmu síðar minnkaði Birkir Valur Jónsson muninn en nær komust heimamenn ekki.

Þetta var fyrsti leikur Grindvíkinga í Lengjubikarnum í ár en annar leikur HK sem tapaði fyrir FH í fyrstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner