Fotbolti.net
15.02.22 - 11:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Viðar Ari til Honved (Staðfest)

Viðar Ari til Honved (Staðfest)
Canon

Mynd: Honved

Viðar Ari Jónsson er genginn í raðir ungverska félagsins Honved Budapest sem spilar í efstu deild þar í landi. Viðar hefur síðustu þrjú tímabil spilað með Sandefjord í Noregi en hann er uppalinn í Fjölni og hefur auk þess spilað með Brann og FH á sínum ferli.
Viðar er 27 ára gamall og kemur á frjálsri sölu til ungverska félagsins. Hann átti frábært tímabil í Noregi í fyrra og rann í kjölfarið út á samningi.

Viðar skrifar undir eins og hálfs árs samning með möguleika á eins árs framlengingu. Talsverður áhugi var á Viðari og fékk hann samningstilboð meðal annars frá Svíþjóð, Noregi og Ungverjalandi.

Um Honved
Honved er sögufrægt félag sem hefur fjórtán sinnum orðið ungverskur meistari (síðast 2017) og átta sinnum bikarmeistari (síðast 2020). Þekktasti leikmaðurinn sem hefur spilað með liðinu er Ferenc Puskás sem varð fimm sinnum meistari sem leikmaður liðsins og árið 2000 var treyja númer tíu sett til hliðar honum til heiðurs.

Ferenc Horvath er þjálfari félagsins en hann lék á sínum tíma 32 landsleiki á sínum ferli. Félagið er það fjórða sigursælasta í Ungverjalandi á eftir Ferencvaros, MTK Búdapest og Újpest.

Liðið komst með sigri í gær gegn MOL Fehervar upp í áttunda sæti deildarinnar eftir að hafa verið í því tíunda. Viðar er fimmti leikmaðurinn sem félagið fær í vetrarglugganum.

Hjá félaginu er lánsmaður frá Napoli sem heitir Zinédine Machach. Þá eru þrír leikmenn í hópnum sem eiga landsleiki fyrir Ungverjaland auk markmannsins Peter Szappanos sem var í síðasta landsliðshópi. Þá eru tveir Serbar í hópnum sem eiga landsleiki og einn Albani.

Að minnsta kosti tveir leikmenn hafa spilað á Íslandi eftir að hafa verið hjá Honved. Það eru þeir Balasz Tóth (Þór tímabilið 2015) og David Disztl (þrjú tímabil með KA og eitt með Þór).

Tveir íslenskir leikmenn hafa leikið í ungversku deildinni á undanförnum árum. Aron Bjarnason var á mála hjá Újpest og Kjartan Henry Finnbogason lék með Ferencvaros. Þá mmá bæta því við að Prince Rajcomar lék með Zalaegerszeg í Ungverjalandi eftir að hafa spilað með Breiðabliki og KR hér á landi.
Viðar Ari til Honved (Staðfest)
Canon

Mynd: Honved

Viðar Ari til Honved (Staðfest)
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.