Fotbolti.net
15.03.14 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Anelka rekinn frá West Brom (Staðfest)

Víðförull franskur 35 ára sóknarmaður í leit að nýju liði

Víðförull franskur 35 ára sóknarmaður í leit að nýju liði

Canon

Mynd: Getty Images

Nicolas Anelka tilkynnti samningsriftun á Twitter eftir að West Bromwich Albion ákvað að fimm leikja banni Anelka yrði ekki áfrýjað til enska knattspyrnusambandsins.

Anelka fagnaði á umdeildan hátt eftir að hafa skorað gegn Aston Villa þann 28. desember og hafði enska knattspyrnusambandið rannsakað málið í um þrjá mánuði þegar það komst að niðurstöðu um að dæma franska sóknarmanninn í fimm leikja bann.
Anelka vildi áfrýja banninu en West Brom leyfði það ekki svo hann ákvað að rifta samningnum.

Félagið sagði það samningsbrot að tilkynna um riftun áður en hún er framkvæmd og ákvað að einfaldlega reka leikmanninn í kjölfarið.

,,Meint samningsriftun Nicolas Anelka gegnum samskiptavefsíðu var ógild þar sem ekki var farið löglega að samningsriftuninni,\" stendur í yfirlýsingu West Brom.

,,Félagið lítur alvarlegum augum á þessa viðbjóðslegu hegðun hjá Anelka, bæði 28. desember og nýlega á samskiptavefsíðu.

,,Félagið komst að niðurstöðu og skrifaði bréf til að gera Nicolas Anelka viðvart um að hann ætti tvær vikur eftir í starfi.\"

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.