15.03.14 - 18:14
Brynjar Ingi Erluson
Rivaldo leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Rivaldo og Ronaldo kyssa HM-bikarinn árið 2002

Mynd: Getty Images

Brasilíski snillingurinn Rivaldo sem lék lengi vel með Barcelona á Spáni hefur lagt skóna á hilluna eftir 24 ára magnaðan feril en þetta staðfesti hann í dag.
Rivaldo, sem er 41 árs gamall, átti magnaðan feril eins og áður kom fram en hann spilaði með Barcelona í fimm ár frá árunum 1997 til 2002 þar sem vann vann spænsku deildina, bikarinn og ofurbikar Evrópu.
Hann vann þá Ballon d\'Or verðlaunin árið 1999 en óhætt er að segja að hann kemst í hóp þeirra bestu sem spilað hafa íþróttina.
Hann yfirgaf Barcelona eftir að hafa unnið HM árið 2002 og samdi við AC Milan en hann lék einnig fyrir félög á borð við Cruzeiro, Olympiakos og AEK Aþenu.
Hann er núverandi forseti Mogi Mirim í Seríu C í Brasilíu þar sem Rivaldinho, sonur hans spilar. Rivaldo hefur annað slagið leiki með liðinu en hann hefur nú endanlega lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril.
,,Ég segi þetta með tárin í augunum en ég vil þakka Guði og fjölskyldu minni fyrir allan þann stuðnings sem ég hef fengið á 24 ára ferli mínum,\" sagði Rivaldo.
,,Í dag tilkynni ég stuðningsmönnum mínum þá ákvörðun að ég hef ákveðið að leggja skóna á hilluna,\" sagði hann að lokum.
Rivaldo lék 74 landsleiki með brasilíska landsliðinu og skoraði 34 mörk en hann vann allt sem hægt er að vinna sem atvinnumaður í fótbolta og getur hann því skilið nokkuð sáttur við afrek sín á þessum glæsta ferli.