Fotbolti.net
15.03.16 - 12:17
Magnús Már Einarsson

Lennon hættur með Bolton (Staðfest)

Lennon hættur með Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Neil Lennon er hættur sem stjóri Bolton Wanderers en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.

Nýir eigendur tóku við Bolton á dögunum en liðið hefur verið í miklum vandræðum fjárhagslega.

Bolton er sem stendur í langneðsta sæti í Championship deildinni og fall virðist ætla að verða niðurstaðan.
Lennon tók við Bolton árið 2014 eftir að hafa áður þjálfað Celtic.

Hann var stjóri Bolton þegar félagið samdi við Eið Smára Guðjohnsen á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.