Fotbolti.net
15.03.16 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Þjálfari Diego Jóhannessonar hættur (Staðfest)

Þjálfari Diego Jóhannessonar hættur (Staðfest)
Canon

Mynd: Yo te quiero Real Oviedo

Sergio Egea, þjálfari Diego Jóhannessonar og félaga í Real Oviedo, er hættur störfum hjá félaginu.

Ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun Egea eru sagðar persónulegar, en hann hefur verið að gera frábæra hluti með Oviedo sem er í toppbaráttu spænsku B-deildarinnar.
Diego Jóhannesson hefur verið að leika lykilhlutverk í stöðu hægri bakvarðar en félagið er þó búið að tapa tveimur leikjum í röð og er sex stigum frá toppliði Leganes, og þremur stigum á eftir Alaves sem er í öðru sæti.

Oviedo er í þriðja sæti, þó skilur aðeins eitt stig liðið að frá Gimnastic í sjöunda sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.