Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. mars 2020 16:11
Ívan Guðjón Baldursson
Hótelið hans Ronaldo: Við erum hótel, ekki sjúkrahús
Mynd: Getty Images
Spænski fréttamiðillinn Marca greindi frá því í morgun að Cristiano Ronaldo hyggðist breyta hótelum sínum í sjúkrahús í baráttunni gegn kórónaveirunni.

Fjölmiðlar víðs vegar um heim birtu fréttina sem sprakk út á engri stundu.

RTL News setti sig í samband við talsmann Pestana CR7 hótelsins í Lissabon. Talsmaðurinn sagði ekkert vera til í þessum fréttum.

„Við erum hótel. Við erum ekki að breyta okkur í sjúkrahús. Þetta er bara venjulegur dagur hjá okkur, við erum og munum halda áfram að vera hótel," sagði talsmaðurinn.

Ronaldo sjálfur hefur ekki tjáð sig um málið. Hann er í sóttkví eftir að liðsfélagi hans Daniele Rugani greindist með kórónaveiruna.
Athugasemdir
banner
banner