Fotbolti.net
15.03.22 - 16:45
Elvar Geir Magnússon

Toby Collyer til Man Utd (Staðfest)

Toby Collyer.

Toby Collyer.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur tryggt sér miðjumanninn unga Toby Collyer frá Brighton. Þessi átján ára strákur var eftirsóttur en hann hafnaði West Ham og Chelsea.

Þeir sem hafa unnið með þessum varnarsinnaða miðjumanni bera honum söguna og er hann sagður í fjölmiðlum efnilegasti leikmaður landsins í sinni stöðu.
Collyer hefur borið fyrliðabandið hjá U16 og U17 landsliðum Englands.

„Þegar hann var í U15 liðinu okkar þá æfði hann oft með U18. Það sást að hann yrði toppklassa leikmaður," segir Mark Beard, fyrrum unglingaþjálfari Brighton.

„Hann er alltaf með frammistöðu upp á 8 af 10 að minnsta kosti. Hann er með bestu hlaupatölurnar, hleypur 13 kílómetra í leik og brýtur hlutina upp."

Ekki er búist við því að Collyer geri tilkall í að koma við sögu hjá aðalliði Manchester United strax en fróðlegt verður að sjá hvað gerist í framtíðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.