15.04.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Einar Bjarni í KV (Staðfest)

Einar Bjarni í leik með KV.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KV hefur fengið liðsstyrk fyrir 2. deildina í sumar en miðjumaðurinn Einar Bjarni Ómarsson er kominn til félagsins frá Fram.
Einar Bjarni spilaði með KV 2012 og 2013 en síðara árið var hann valinn leikmaður ársins í 2. deild.

Einar Bjarni fór í kjölfarið til Fram þar sem hann spilaði í Pepsi-deildinni sumarið 2014.
Í fyrra fór Einar Bjarni til KV á láni um mitt sumar og skoraði fjögur mörk í sjö leikjum.
Hann er nú laus undan samningi hjá Fram og mun spila með KV í sumar.