Dyche rekinn frá Burnley (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sean Dyche hefur verið rekinn sem stjóri Burnley.
Dyche hefur verið stjóri Burnley frá árinu 2012 en á þeim tíma hefur hann tvisvar komið liðinu upp í úrvalsdeildina.
Þessi fimmtugi stjóri yfirgefur félagið í fallsæti. Liðið er í 18. sæti fjórum stigum á eftir Everton þegar átta leikir eru eftir. Liðið hefur aðeins unnið fjóra leiki á þessari leiktíð, með átta jafntefli og fjórtán töp.
„Fyrst og fremst viljum við þakka Dyche og hans teymi fyrir afrek sín hjá félaginu síðasta áratug. Aftur á móti hafa úrslitin á þessari leiktíð verið vonbrigði þó þetta hafi verið mjög erfið ákvörðun þegar átta leikir eru eftir finnst okkur þetta vera nauðsynlegt til að gefa hópnum sem mestan möguleika á að halda sæti sínu í deildinni," sagði Alan Pace, formaður félagsins.
Dyche er tíundi stjórinn til að vera rekinn á þessari leiktíð en Xisco Munoz (Watford), Steve Bruce (Newastle), Nuno Espirito Santo (Tottenham), Daniel Farke (Norwich), Dean Smith (Aston Villa), Ole Gunnar Solskjær (Man Utd), Rafa Benitez (Everton), Claudio Ranieri (Watford) og Marcelo Bielsea (Leeds) hafa einnig verið reknir.
Félagið er í leit að nýjum stjóra en hann verður kynntur von bráðar.
Jóhann Berg Guðmundsson er leikmaður Burnley en Dyche fékk hann til félagsins árið 2016.
