Freyr framlengir við Lyngby (Staðfest)


Mynd: Lyngby


Mynd: Lyngby
Freyr Alexandersson þjálfari Lyngby hefur framlengt samning sinn við félagið.
Freyr tók við Lyngby í júní í fyrra og hefur átt frábært fyrsta ár. Félagið er í toppbaráttu í dönsku B-deildinni og ákvað stjórnin að sýna Frey tryggð með að semja áður en tímabilinu lýkur.
Freyr skrifar undir þriggja ára samning við félagið, sem gildir til sumarsins 2025. Allir innan félagsins eru gríðarlega ánægðir með störf Freys sem hafði áður verið aðstoðarþjálfari Heimis Hallgrímssonar bæði hjá íslenska landsliðinu og Al Arabi. Þar áður þjálfaði Freyr A-landslið kvenna með góðum árangri.
Lyngby er sem stendur í öðru sæti B-deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan þriðja sætið. Toppliðin tvö komast upp í efstu deild.
Sævar Atli Magnússon er mikið í kringum byrjunarlið Lyngby og er Frederik Schram einnig samningsbundinn félaginu.
