Fotbolti.net
15.04.22 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Laporta breytir miðasölureglum Barcelona (Staðfest)

Laporta breytir miðasölureglum Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

FC Barcelona er enn að skoða hvað gerðist fyrir leik liðsins gegn Eintracht Frankfurt í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Stuðningsmenn Frankfurt virtust vera í meirihluta á Nývangi og hefur Joan Laporta forseti Barcelona staðfest að það voru í raun fleiri Þjóðverjar heldur en Spánverjar á leikvanginum.

Í upphafi var talið að Þjóðverjarnir á Nývangi væru 30 þúsund talsins en útlit er fyrir að þeir hafi verið að minnsta kosti 35 eða 40 þúsund, og líklegast fleiri. Í heildina mættu 79 þúsund manns á leikinn.

Ljóst er að nokkur þúsund ársmiðahafar Barcelona seldu miðana sína beint eða óbeint til stuðningsmanna Frankfurt og þá var einfaldlega ekki nægur áhugi á leiknum meðal heimamanna sem gerði það að verkum að rúmlega 30 þúsund miðar fóru í 'opna sölu'. Þeir miðar enduðu allir hjá Þjóðverjum.

Gestirnir frá Frankfurt nutu sín í Barcelona og komust í þriggja marka forystu. Þeir uppskáru að lokum 2-3 sigur og tryggðu sig áfram í undanúrslitin með sögulegum sigri.

Til að sporna við að þetta gerist aftur hefur Laporta breytt reglunum á Nývangi. Héðan í frá verða allir miðar skráðir á nafn og áhorfendum ekki hleypt inn án skilríkja.

Í yfirlýsingu FC Barcelona fordæmdi félagið hegðun stuðningsmanna Frankfurt og kallaði hana siðlausa og ógnandi.

Laporta breytir miðasölureglum Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.