Matic endar samninginn við Man Utd ári fyrr (Staðfest)

Edinson Cavani er einnig á förum í sumar.

Mynd: Getty Images

Edinson Cavani er einnig á förum í sumar.

Mynd: Getty Images
Serbneski miðjumaðurinn Nemanja Matic ætlar ekki að spila með Manchester United á næstu leiktíð. Þetta staðfesti hann með færslu á Instagram í dag.
Matic á ennþá rúmt ár eftir af samningi sínum við Rauðu djöflana en hefur komist að samkomulagi við stjórn félagsins um að binda enda á samninginn.
Hann getur því skipt um félag á frjálsri sölu en Brendan Rodgers er talinn vilja fá hann til liðs við sig í Leicester.
Matic er 33 ára gamall og hefur spilað tæpa 200 keppnisleiki á fimm árum í Manchester en þar áður var hann hjá Chelsea og Benfica.
Talið er að félög víðs vegar um Evrópu hafi áhuga á að klófesta Matic í sumar, þar á meðal eru helstu lið Serie A deildarinnar á Ítalíu, Leicester City og Borussia Dortmund.
„Eftir mikla umhugsun hef ég ákveðið að þetta verður mitt síðasta tímabil með Manchester United. Það hefur verið mér heiður að spila fyrir þetta frábæra félag og ég vil þakka stuðningsmönnum sérstaklega fyrir að láta mér líða vel á tíma mínum hér," skrifaði Matic á Instagram.
„Núna mun ég gefa allt sem ég hef til að enda tímabilið á sem bestan hátt."
