Fotbolti.net
15.04.22 - 17:20
Ívan Guðjón Baldursson

Pardew fær tveggja leikja samning hjá CSKA Sofia (Staðfest)

Pardew fær tveggja leikja samning hjá CSKA Sofia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

CSKA Sofia hefur staðfest að enski þjálfarinn Alan Pardew mun stýra liðinu næstu tvo leiki.

Pardew hefur starfað sem tæknilegur ráðgjafi hjá CSKA Sofia undanfarin misseri og mun stýra liðinu í nágrannaslagnum gegn Levski Sofia sem er á Páskadag.

Pardew tekur við eftir að Stoycho Mladenov lét óvænt af störfum eftir rifrildi við hluthafa CSKA.

CSKA er í öðru sæti búlgörsku deildarinnar, tólf stigum eftir toppliði Ludogorets. CSKA situr í Evrópudeildarsæti og er með sex stiga forystu á næsta lið fyrir neðan.

Gangi CSKA vel undir stjórn Pardew fær hann samning til lengri tíma. Pardew hefur ekki stýrt fótboltaliði síðan hann var hjá ADO Den Haag í Hollandi 2019-20.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.