15.04.22 - 18:06
Ívan Guðjón Baldursson
Pontus Lindgren í KR (Staðfest)


Mynd: KR


Mynd: KR
KR er búið að staðfesta komu sænska varnarmannsins Pontus Lindgren til félagsins. Hann gerir tveggja ára samning við KR.
Lindgren, 21 árs, kemur til KR frá IK Sylvia sem leikur í C-deild sænska boltans. Hann er uppalinn hjá stórliði Norrköpping en hefur verið hjá Sylvia síðustu þrjú ár.
Hjá KR fær Lindgren tækifæri til að spila í Evrópukeppni sem hann hefur ekki gert áður.
Lindgren er einn af þremur útlendingum sem hafa verið á reynslu í Vesturbænum að undanförnu. Með honum er einn annar Svíi og einn Skoti.
Fótbolti.net spáir KR 5. sæti í Bestu deildinni í ár en fyrsti leikur liðsins er gegn nýliðum Fram á útivelli næsta miðvikudag. KR endaði í 3. sæti efstu deildar í fyrra.
