| mið 15.apr 2026 11:00 Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 9. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Grindavík/Njarðvík muni enda í níunda og næst neðsta sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Grindavík/Njarðvík fellur beint aftur ef spáin rætist.
Ása Björg Einarsdóttir og Emma Fanndal Jónsdóttir verða í lykilhlutverkum í sumar.
Mynd/Grindavík/Njarðvík
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig
Um liðið: Grindavík og Njarðvík mættu í fyrsta sinn með sameiginlegt lið til leiks í kvennaflokki síðasta sumar. Liðinu var spáð sjöunda sæti fyrir Lengjudeildina en þetta nýstofnaða lið kom mikið á óvart og endaði í öðru sæti deildarinnar, og vann sér þannig inn rétt til að spila í Bestu deildinni í sumar. Það er óhætt að tala um heillaskref þegar meistaraflokkar félagana sameinuðust fyrir tímabilið í fyrra. Lið Grindavíkur hafði verið í basli frá því að rýma þurfti bæinn árið 2023 vegna jarðhræringa og þá höfðu Njarðvíkingar verið að leggja drög að meistaraflokki kvenna hjá félaginu árin áður en þessi ákvörðun var tekin. Sameiginlegt lið félagana mun taka þátt í Bestu deildinni í fyrsta sinn í sumar og ætlar sér að afsanna þessa spá frá sérfræðingunum.
Þjálfarinn: Gylfi Tryggvason var fyrir síðasta tímabil ráðinn fyrsti þjálfari í sögu Grindavík/Njarðvík. Hann gerði samning við félagið sem gildir til ársins 2027. Gylfi starfaði þar áður sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK og sá einnig um yngri flokka þjálfun þar. Hann býr yfir góðri reynslu úr íslenska boltanum eftir að hafa þjálfað hjá Fylki, Stjörnunni og Árbæ og þá er hann mikill áhugamaður um neðri deildirnar í íslenska boltanum þar sem hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa haldið uppi hlaðvarpsþáttunum Ástríðan sem fjölluðu um neðri deildir karla. Auk þess starfaði hann sem dómari og var kominn framarlega í flokk þar á sínum tíma. Gylfi er mjög metnaðarfullur ungur þjálfari sem þjálfar í fyrstu sinn í efstu deild í sumar.
Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stendur liðið og fellur með Natöshu?
„Grindavík/Njarðvík er að mörgu leyti óskrifað blað en það sem einkenndi liðið á síðasta tímabili voru öflugir erlendir leikmenn og mikil stemning."
„Undirbúningstímabilið hefur verið upp og niður en sigur gegn FH og jafntefli við Stjörnuna ætti að gefa liðinu kraft til að ná lengra og hafa trú á að liðið geti haldið sér uppi."
„Heimavöllurinn mun vega þungt og þarf liðið að gera grasvöllinn að vígi. Það þarf að vera standandi partý en ef byrjunin verður þung er líklegt að tónlistin hætti og grasið fari að súrna ansi hratt."
„Mæting á völlinn skiptir máli og þurfa Grindvíkingar að styðja við sínar uppöldnu leikmenn sem eru í liðinu."
Lykilmenn: Natasha Anasi og Ása Björg Einarsdóttir
Það var risastórt fyrir Grindavík/Njarðvík að semja við reynsluboltann Natöshu í vetur. Hún er ekki bara ótrúlega góð í fótbolta, hún er líka stórkostlegur karakter og mikill karakter sem er með mikla reynslu úr Bestu deildinni. Natasha er að koma til baka eftir krossbandsslit en hún ætti að vera klár í fyrsta leik í Bestu deildinni. Ása Björg hefur verið afar mikilvægur leikmaður fyrir Grindavík síðustu árin og hún var lykilmaður fyrir Grindavík/Njarðvík á síðustu leiktíð. Hún spilaði alla leikina í Lengjudeildinni og skoraði fjögur mörk. Núna er hún í fyrsta sinn að fara að spila í Bestu deildinni og verður gaman að fylgjast með henni spreyta sig þar. Hún er hjartað í liðinu og hefur farið í gegnum súrt og sætt með Grindavík.
Gaman að fylgjast með: Lauren Kellett
Bandarískur markvörður sem gekk í raðir félagsins í vetur. Hún vann bandarísku USL-deildina með Tampa Bay Sun í fyrra en þar áður lék Lauren fyrir TCU í háskólaboltanum. Þar var hún valin í lið ársins tvö ár í röð og sem besti markvörður deildarinnar. Það mun mikið mæða á henni í sumar og hún þarf að standa sig. Lauren er líka skemmtileg utan vallar en hún hefur verið dugleg að sýna frá lífi sínu utan vallar á samfélagsmiðlum og hvetjum við fólk til að fylgjast með henni á TikTok.
Komnar:
Natasha Anasi frá Val
Rut Sigurðardóttir frá Haukum
Lily Anna Farkas frá Fram
Lea Björt Kristjánsdóttir frá Þrótti
Maci Teater frá Bandaríkjunum
Hannah McLaughlin frá Bandaríkjunum
Lauren Kellett frá Bandaríkjunum
Júlía Ruth Thasaphong frá Víkingi
Ellie Coffield frá Bandaríkjunum
Farnar:
Emma Björt Arnarsdóttir í KR (var á láni frá FH)
Brookelynn Paige Entz í Fram
María Martínez López
Lauren Michelle Memoly
Emma Nicole Phillips
Hugrún Helgadóttir í HK (Var á láni)
Tinna Harðardóttir í Fylki (Var á láni)
Eydís Arna Hallgrímsdóttir í Tindastól (Var á láni frá Fram)
Fyrstu fimm leikir Grindavíkur/Njarðvíkur:
25. apríl, Valur - Gri/Njarð (N1 völlurinn Hlíðarenda)
30. apríl, Grindavík/Njarðvík - Þór/KA (JBÓ völlurinn)
6. maí, FH - Grindavík/Njarðvík (Kaplakrikavöllur)
11. maí, Þróttur - Grindavík/Njarðvík (AVIS völlurinn)
20. maí, Grindavík/Njarðvík - Stjarnan (JBÓ völlurinn)
Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.


