Fotbolti.net
15.05.13 - 15:12
Magnús Már Einarsson

Arnar Már í Víking Ó. (Staðfest)

Arnar Már í Víking Ó. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Víkingur Ólafsvík hefur fengið kantmanninn Arnar Má Björgvinsson til liðs við sig á láni frá Breiðabliki.
Arnar Már hefur ekki verið í leikmannahópi Breiðabliks í fyrstu tveimur leikjunum í Pepsi-deildinni í sumar en hann mun nú fara til nýliðana í Ólafsvík.

Arnar Már er uppalinn hjá Stjörnunni en hann gekk til liðs við Breiðablik eftir sumarið 2010.

Þessi 22 ára gamli leikmaður skoraði þrjú mörk í tólf leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra.

Arnar Már gæti leikið sinn fyrsta leik með Ólafsvíkingum á morgun þegar Keflvíkingar koma í heimsókn í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.