15.05.13 - 16:09
Magnús Már Einarsson
Benis Krasniqi í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingar hafa fengið varnarmanninn Benis Krasniqi í sínar raðir.
Benis hefur leikið á Íslandi frá árinu 2009 en undanfarin tvö ár hefur hann verið á mála hjá Haukum.
Benis, sem er fæddur árið 1981, skoraði eitt mark í tuttugu leikjum með Haukum í fyrstu deildinni í fyrra.

Sumarið 2009 var Benis á mála hjá KS/Leiftri fyrri hluta tímabils áður en hann fór í Reyni Sandgerði þar sem hann spilaði síðari hlutann árið 2009 og sumarið 2010.
Benis er kominn með leikheimild með Keflavík og getur því spilað með liðinu gegn Víkingi Ólafsvík annað kvöld.