Fotbolti.net
15.05.13 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Kristinn Þór í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Kristinn Þór í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Bjarni Gunnarsson

Dalvík/Reynir hefur fengið vinstri kantmanninn Kristinn Þór Björnsson á láni frá Þór en lánssamningurinn gildir í einn mánuð.

Kristinn Þór er uppalinn hjá Dalvík en hann gekk til liðs við Þórsara fyrir síðastliðið sumar.
Kristinn skoraði tíu mörk með Dalvík/Reyni í 2. deildinni 2011 en í fyrra skoraði hann sex mörk í 21 leik með Þór í deild og bikar.

Þess má til gamans geta að bróðir Kristins er Atli Viðar Björnsson framherji FH.

Kristinn verður með Dalvík/Reyni þegar liðið mætir Njarðvík í 2. deildinni á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.