Fotbolti.net
15.05.13 - 20:48
Magnús Már Einarsson

Sigurður Egill í Víking R. (Staðfest)

Sigurður Egill í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. hefur fengið Sigurð Egil Lárusson á láni frá Valsmönnum.

Sigurður Egill er uppalinn Víkingur en hann gekk til liðs við Valsmenn síðastliðið haust.
Sigurður Egill hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti í liði Vals en hann var ekki í leikmannahópnum gegn ÍA í fyrrakvöld.

Þessi 21 árs gamli leikmaður fer nú aftur í Víking en hann var valinn efnilegasti leikmaðurinn í 1. deildinni með liðinu í fyrra.

Sigurður er fjölhæfur leikmaður en hann getur leikið í vinstri bakverði, á kanti og miðju.

Búast má við að Sigurður Egill verði með Víkingi R. þegar liðið fær Selfoss í heimsókn í fyrstu deildinni á föstudagskvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.