Fotbolti.net
15.05.13 - 21:30
Magnús Már Einarsson

Tómas Leifsson í ÍH (Staðfest)

Tómas Leifsson í ÍH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kantmaðurinn Tómas Leifsson hefur gengið til liðs við ÍH í þriðju deildinni.

Tómas ætlaði að taka sér frí frá fótbolta í sumar en hann hefur nú fengið félagaskipti í ÍH.

Í vetur æfði Tómas lítið en hann yfirgaf herbúðir Selfyssinga síðastliðið haust.
Tómas gekk í raðir Selfyssinga fyrir síðasta tímabil og skoraði þrjú mörk í 18 leikjum þegar liðið féll úr Pepsi-deildinni í fyrra.

Hinn 28 ára gamli Tómas er uppalinn hjá FH en hann hefur einnig leikið með Fjölni og Fram á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.