15.05.14 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Ægir fær Sverri Þór og enskan markvörð (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Sverrir Þór Garðarsson hefur farið frá HK yfir í Ægi Þorlákshöfn sem leikur í 2. deildinni.
Sverrir lék 17 leiki með HK síðasta sumar og hjálpaði liðinu að vinna 2. deildina og komast upp í þá fyrstu. Skoraði hann tvö mörk.

Ægir hefur einnig fengið markvörðinn enska Matthew Towns sem lék í úrvalsdeildinni á Möltu.
Í dag er síðasti dagur félagaskiptagluggans og félög keppast við að styrkja sig fyrir komandi átök.
Ægir tapaði 2-3 fyrir Dalvík/Reyni í fyrstu umferð 2. deildar og mætir Fjarðabyggð í næsta leik á laugardag.