15.05.14 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Ástrós, Elísabet og Jóhanna í KR (Staðfest)

KR hefur styrkt sig gríðarlega fyrir sumarið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er öllum ljóst að KR í fyrstu deild kvenna ætlar sér stóra hluti í sumar en mikill liðsstyrkur hefur komið fyrir komandi tímabil og er enn bæting á en Ástrós Lea Guðlaugsdóttir, Elísabet Guðmundsdóttir og Jóhanna Kolbjörg Sigurþórsdóttir gengu allar í félagið í gær.
Ástrós, sem er fædd árið 1993 er uppalin í FH en hún hefur leikið 28 leiki í bæði deild- og bikar fyrir meistaraflokk félagsins. Þess má til gamans geta að Ástrós er dóttir Guðlaugs Baldurssonar, aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla hjá FH.
Elísabet kemur einnig úr röðum FH-inga en hún er fædd sama ár og Ástrós. Hún hefur leikið 41 leik og skorað 1 mark fyrir FH í bæði deild- og bikar og ljóst að KR-ingar eru að fá þarna góðan liðsstyrk.
Jóhanna Kolbjörg er fædd árið 1994 og kemur úr Stjörnunni. Hún hóf meistaraflokkferil sinn með Hetti á Egilsstöðum áður en hún fór í Stjörnuna. Hún var lánuð í Álftanes á síðasta ári þar sem hún lék 16 leiki og skoraði 2 mörk.
1. deild kvenna fer að hefjast en KR-ingar byrjuðu vel í Borgunarbikarnum þar sem liðið lagði HK/Víking með fjórum mörkum gegn engu.