Fotbolti.net
15.05.14 - 18:10
Hafliði Breiðfjörð

Birna Kristjáns í Val - Björk í HK/Víking (Staðfest)

Birna Kristjánsdóttir er farin í Val.

Birna Kristjánsdóttir er farin í Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Kvennaboltinn
Birna Kristjánsdóttir markvörður Breiðabliks er gengin í raðir Vals og er þegar komin með leikheimild með sínu nýja félagi.

Þá er Björk Björnsdóttir sem hefur verið varamarkvörður Vals farin í HK/Víking.
Hjá Val mun Birna berjast við Þórdísi Maríu Aikman um byrjunarliðssætið en hún hefur varið markið síðan í fyrra.

Birna missti af næstum öllu síðasta tímabili eftir að hafa slitið krossband í leik gegn FH í byrjun tímabilsins.

Hún er klár í slaginn að nýju og hefur æft að fullu með Blikum. Hún var varamarkvörður fyrir Sonný Láru Þráinsdóttur í fyrsta leik mótsins gegn Stjörnunni.

Birna er á 28. aldursári. Hún hóf feril sinn hjá Breiðabliki árið 2003 og lék síðar með HK/Víkingi og Völsungi. Hún sneri aftur til Breiðabliks árið 2010 og hafði verið aðalmarkvörður liðsins þar til hún meiddist í fyrra.

Björk Björnsdóttir kom til Vals er 25 ára gömul. Hún kom til Vals í fyrra en spilaði aðeins tvo leiki í Pepsi-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.