Fotbolti.net
15.05.14 - 18:06
Magnús Már Einarsson

Fanndís í Breiðablik (Staðfest)

Fanndís Friðriksdóttir.

Fanndís Friðriksdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanndís Friðriksdóttir hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Breiðablik á nýjan leik en þetta kemur fram á mbl.is.

Fanndís hefur leikið í Noregi undanfarið eitt og hálft ár en hún skoraði sjö mörk í 22 leikjum með Kolbotn í fyrra.

Í vetur gekk hún til liðs við Arna-Björnar en nú hefur hún ákveðið að leika með Blikastúlkum í Pepsi-deildinni í sumar.

„Það var bara ekki staðið við gerða samn­inga hérna í Nor­egi, og það var orðið marg ít­rekað. Þannig ég vildi bara fara,“ sagði Fanndís á mbl.is.
Hin 24 ára gamla Fanndís styrkir lið Breiðabliks mikið en hún á 49 landsleiki að baki.

Breiðablik sigraði Íslandsmeistara Stjörnunnar 1-0 í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í vikunni en liðið mætir Fylki í næsta leik á þriðjudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.