15.05.14 - 10:05
Magnús Már Einarsson
Patrick Pedersen í Val (Staðfest)

Patrick Pedersen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrick Pedersen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur keypt framherjann Patrick Pedersen frá Vendsyssel í Danmörku en þetta kemur fram á heimasíðu síðarnefnda félagsins.
Patrick var í láni hjá Val síðari hlutann á síðasta tímabili þar sem hann skoraði fimm mörk í níu leikjum og stóð sig vel.
Valur vildi fá leikmanninn aftur í sínar raðir og Hlíðarendafélagið hefur nú keypt hann frá Danmörku.
<i>,,Vendsyssel FF fékk mjög flott tilboð og þar sem Patrick óskaði á sama tíma eftir meiri spiltíma þá ákváðum við að ganga frá félagaskiptunum,\"</I> segir á heimasíðu Vendsyssel.

Patrick er 22 ára gamall en hann hefur leikið með Vendsyssel undanfarin ár.
Valur mætir Fram í Reykjavíkurslag í Pepsi-deildinni á mánudagskvöld og reikna má með að Patrick verði með liðinu í þeim leik.

Heimild: Heimasíða Vendsyssel