Fotbolti.net
15.05.14 - 20:24
Alexander Freyr Tamimi

Stjarnan fær ítalska landsliðskonu (Staðfest)

Carissimi hér í baráttunni við hina þýsku Birgitte Prinz, eina bestu knattspyrnukonu sögunnar.

Carissimi hér í baráttunni við hina þýsku Birgitte Prinz, eina bestu knattspyrnukonu sögunnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Kvennalið Stjörnunnar hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni, en ítalska landsliðskonan Marta Carissimi er gengin til liðs við félagið frá Inter í heimalandinu.
Carissimi er miðjumaður sem hefur áður leikið með Torino og Bardolino í heimalandinu, en hún er 27 ára gömul.

Hún spilaði 23 leiki fyrir Inter á afstaðinni leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk.

Carissimi á 37 landsleiki að baki fyrir Ítalíu og hefur einnig spilað í Meistaradeild Evrópu. Hún lék síðast með ítalska landsliðinu í 11-0 sigri gegn Makedóníu fyrir viku og skoraði eitt mark. Spilaði hún allan leikinn, en Ítalía er í 12. sæti á heimslista FIFA.

Carissimi er svo gott sem jafnfætt, sterk í loftinu og með góðan leikskilning.

Stjarnan tapaði fyrsta leik sínum á tímabilinu í Pepsi-deildinni gegn Breiðabliki í vikunni, 1-0.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.